Körfubolti

Þór mætir KR | Stjarnan mætir Grindavík

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
KR-ingar eiga titil að verja.
KR-ingar eiga titil að verja. Mynd / Anton
Eftir sigur í dramatískum oddaleikjum sínum í átta liða úrslitum Iceland Express-deildar karla í gærkvöldi er ljóst að Þór mætir KR í undanúrslitum en Stjarnan mætir deildarmeisturum Grindavíkur.

Úrslitakeppnin hefst á mánudagskvöldið þegar KR-ingar taka á móti Þór í Vesturbænum í Reykjavík. Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, þekkir vel til í Vesturbænum þar sem hann þjálfaði yngri flokka félagsins í lengri tíma og gerði meistaraflokkinn síðar að Íslandsmeisturum.

Stjarnan, sem lagði Keflavík í framlengdum leik í gærkvöldi, mætir Grindavík sem hefur heimaleikjarétt enda hafnaði liðið í efsta sæti deildarinnar. Fyrsti leikur liðanna fer fram í Grindavík á þriðjudagskvöldið.

Það lið sem fyrr vinnur þrjá leiki í einvígjunum tryggir sér sæti í úrslitum keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×