Golf

Níu metra pútt fyrir erni tryggði Dufner forystuna | Bubba þreyttur

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bandaríkjamaðurinn Jason Dufner setti niður níu metra pútt fyrir erni á 18. holunni á PGA-móti í New Orleans í Bandaríkjunum í gær. Púttið tryggði Dufner eins höggs forystu að loknum tveimur keppnisdögum.

Dufner, sem enn er í leit að fyrsta sigri á PGA-móti, spilaði á sjö höggum undir pari í gær og er á tólf höggum undir samanlagt.

Dufner var tvívegis hársbreidd frá sigri á PGA-móti á síðasta keppnisári. Hann þurfti hins vegar að sætta sig við tap að loknum bráðabana í bæði skiptin.

Skotinn Russel Knox er í öðru sæti á ellefu höggum undir pari líkt og Bandaríkjamennirnir Ken Duke og John Rollins. Luke Donald er nokkrum sætum á eftir efstu mönnum á sex höggum undir pari samanlagt.

Bubba Watson slapp í gegnum niðurskurðinnBandaríkjamaðurinn Bubba Watson, sem sigraði á Masters-mótinu á dögunum, hefur ekki náð sér á strik í New Orleans. Watson. Hinn högglangi Watson spilaði hringinn í gær á einu höggi undir pari, líkt og á fyrsta degi, og er samanlagt á tveimur höggum undir pari. Kylfingar með verri árangur sluppu ekki í gegnum niðurskurðinn.

„Ég er mjög ánægður (að hafa sloppið í gegnum niðurskurðinn). Ég fæ að spila tvo hringi í viðbót og endurmeta stöðuna," sagði Watson sem sagði Masters-mótið ennþá sitja í sér.

„Ég er uppgefinn. Ég hef ekki gefið mér neinn tíma til að fagna sigrinum á Masters-mótinu. Mér gengur ekki nægilega vel að einbeita mér að golfinu fyrir vikið," sagði Watson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×