Golf

Tiger komst ekki í gegnum niðurskurðinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Nordic Photos / Getty Images
Tiger Woods er úr leik á PGA-mótinu sem nú fer fram í Charlotte í Norður-Karólínu. Þetta er hans fyrsta mót eftir Masters-mótið í síðasta mánuði.

Woods var aðeins einu höggi frá því að komast í gegnum niðurskurðinn en náði þó ekki að vera í hópi þeirra 74 kylfinga sem komust áfram á þriðja keppnisdaginn.

„Þetta er pirrandi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þetta gerist en tilfinningin er alltaf jafn vond," sagði Tiger sem spilaði á 73 höggum á öðrum keppnisdegi. Honum gekk illa á Masters og virðist vera nokkuð frá sínu besta um þessar mundir.

Þetta er í áttunda sinn á PGA-mótaröðinni sem Woods kemst ekki í gegnum niðurskurðinn. Það gerðist fjórum sinnum á þeim 231 móti sem hann tók þátt í áður en upp komst um framhjáhald hans síðla árs 2009.

Eftir að hann byrjaði að keppa á ný hefur hann spilað í 36 PGA-mótum en ekki komist í gegnum niðurskurðinn í fjórum þeirra.

Nick Watney er með forystu eftir fyrstu tvo keppnisdagana en hann spilaði á 64 höggum í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×