Golf

Guðrún Brá: Miklar æfingar í vetur eru að skila árangri

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili er í hópi bestu kylfinga landsins í kvennaflokki þrátt fyrir ungan aldur. Guðrún Brá er fædd árið 1994 er því á 18. aldursári en hún er líkleg til afreka á Eimskipsmótaröðinni i golfi sem hófst um helgina á Hólmsvelli í Leiru.

Guðrún er í öðru sæti fyrir lokadaginn sem fram fer í dag en hún er þremur höggum á eftir Íslandsmeistaranum Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur úr GR sem er efst. Vísir.is ræddi við Guðrúnu Brá á dögunum og hún er á þeirri skoðun að miklar æfingar í vetur séu að skila árangri.

Guðrún Brá setti vallarmet á Garðavelli af bláum teigum á fyrsta mótinu á Arion-mótaröð unglinga sem fram fór um s.l. helgi. Þar lék hún á 66 höggum eða 6 höggum undir pari.

„Ég æfði miklu betur í vetur en áður, ég fór tvær æfingaferðir erlendis, og eina keppnisferð. Ég held að það hafi skilað sínu," sagði Guðrún Brá um góða byrjun sína á keppnistímabilinu. Viðtalið í heild sinni má sjá með því að smella á hnappinn hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×