Golf

Kristinn Reyr lék best á fyrri hring í Korpunni

Sunna Víðisdóttir sem er efst í stúlknaflokki
Sunna Víðisdóttir sem er efst í stúlknaflokki
Fyrri hringurinn af tveimur var leikinn í gær á Korpúlfsstaðavelli í þriðja stigamóti sumarsins á Arion-banka unglingamótaröðinni. Frábær þátttaka er í mótinu en alls eru 135 kylfingar sem taka þátt í mótinu í þremur aldurflokkum hjá báðum kynjum.

GR-ingurinn Kristinn Reyr Sigurðsson lék best allra í dag en hann lék Korpúlfsstaðavöll á 72 höggum eða á pari vallarins. Kristinn leikur í drengjaflokki 15-16 ára og hefur tveggja högga forystu eftir fyrri hring.

Í piltaflokki 17-18 ára er Oliver Fannar Sigurðsson úr GK efstur eftir að hafa leikið á 73 höggum eða einu höggi yfir pari. Hann hefur tveggja högga forystu fyrir seinni hringinn á þá Ragnar Már Garðarsson úr GKG og Bjarka Pétursson úr GB. Í stúlknaflokki 17-18 ára lék Sunna Víðisdóttir úr GR best og kom í hús á 78 höggum eða sex höggum yfir pari. Nánari stöðu má finna á golf.is.

Piltaflokkur, 17-18 ára:

1. Oliver Fannar Sigurðsson, GK 73 +1

2.-3. Ragnar Már Garðarsson, GKG 75 +3

2.-3. Bjarki Pétursson, GB 75 +3

Stúlknaflokkur, 17-18 ára:

1. Sunna Víðisdóttir, GR 78 +6

2. Guðrún Pétursdóttir, GR 80 +8

3.-4. Ásdís Einarsdóttir, GR 82 +10

3.-4. Eydís Ýr Jónsdóttir, GR 82 +10

Drengjaflokkur, 15-16 ára:

1. Kristinn Reyr Sigurðsson, GR 72 par

2. Gísli Sveinbergsson, GK 74 +2

3. Kristófer Orri Þórðarson, GKG 75 +3

Telpnaflokkur, 14-15 ára:

1.-2. Stefanía Elsa Jónsdóttir, GA 81 +9

1.-2. Sara Margrét Hinriksdóttir, GK 81 +9

3. Birta Dís Jónsdóttir, GHD 82 +10

Strákaflokkur, 14 ára og yngri:

1 Atli Már Grétarsson, GK 75 +3

2 Kristján Benedikt Sveinsson, GA 80 +8

3 Axel Fannar Elvarsson, GL 81 +9

Stelpuflokkur, 14 ára og yngri:

1. Ólöf María Einarsdóttir, GHD 88 +16

2. Eva Karen Björnsdóttir, GR 89 +17

3.-4. Laufey Jóna Jónsdóttir, GS 90 +18

3.-4. Thelma Sveinsdóttir, GK 90 +18




Fleiri fréttir

Sjá meira


×