Golf

Kristján vann í Hvaleyrinni eftir dramatískan bráðabana | Ólafur Björn á -25

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kristján Þór Einarsson vann dramatískan sigur í Hafnarfirði.
Kristján Þór Einarsson vann dramatískan sigur í Hafnarfirði. Mynd/GVA
Meistaramótum golfklúbba lauk víða í gær. Kristján Þór Einarsson vann hjá GK eftir bráðabana og vallarmet. Úrslit í meistaraflokki karla hjá GR réðust einnig í bráðabana.

Kristján Þór var níu höggum á eftir Axel Bóassyni fyrir gærdaginn en náði að skila sér í hús á 62 höggum sem er nýtt vallarmet. Axel spilaði á 71 höggi og var á sex höggum undir pari samanlagt, rétt eins og Kristján Þór.

Því þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit en hann var dramatískur. Alls þurfti sjö holur í bráðabana til að fá niðurstöðu en úrsltin réðust á 10. braut, þar sem Kristján lék á pari en Axel fékk skolla.

Rúnar Arnórsson lék frábærlega fyrstu þrjá dagana en náði sér ekki á strik í gær. Hann lék þá á 77 höggum og var samtals á fimm höggum undir pari.

Í kvennaflokki bar Tinna Jóhannsdóttir sigur úr býtum með því að spila á samtals þremur höggum yfir pari. Signý Arnórsdóttir kom næst á sjö höggum yfir pari.

Haraldur vann í GR

Haraldur Franklín Magnús og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir báru sigur úr býtum hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Haraldur og Arnór Ingi Finnbjörnsson léku dagana fjóra á samtals átta höggum undir pari og þurfti því bráðabana til í karlaflokki.

Haraldur hafði betur strax á fyrstu holu og er því klúbbmeistari GR í fyrsta sinn.

Ólafía Þórunn vann yfirburðasigur í kvennaflokki en hún lék á samtals einu höggi undir pari. Ragnhildur Sigurðardóttir kom næst á sautján höggum yfir pari.

Ótrúleg frammistaða Ólafs Björns

Ólafur Björn Loftsson hafði mikla yfirburði á meistaramóti Nesklúbbsins þar sem hann lék á samtals 25 höggum undir pari vallarins (68-68-64-63). Er það lægsta skor í sögu meistaramóts NK en Ólafur fékk alls 28 fugla á mótinu og tvo erni.

Guðjón Henning Hilmarsson sigraði á meistarmóti GKG en næstur kom Sigmundur Einar Másson. Örn Ævar Hjartarson varð klúbbmeistari GS í tólfta sinn á ferlinum og Karen Sævarsdóttir í kvennaflokki en hún tók þátt í meistaramóti í fyrsta sinn í nokkur ár. Þá bar Thoedór Emil Karlsson sigur úr býtum hjá Kili í Mosfellsbæ.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×