Körfubolti

Shouse áfram hjá Stjörnunni

Justin Shouse í leik með Stjörnunni.
Justin Shouse í leik með Stjörnunni. Mynd/HAG
Justin Shouse hefur samið við Stjörnuna á ný og mun því leika með liðinu á næsta keppnistímabili. Það verður hans fjórða tímabil í Garðabænum og sjöunda á Íslandi.

Þetta kom fram á stuðningsmannasíðu Stjörnunnar, stjarnan-karfa.is, þar sem segir einnig að litlar breytingar verði á leikmannahópi liðsins á næstu leiktíð. Allir íslensku leikmenn verði áfram hjá hliðinu, þar með talið Jovan Zdravevski.

Shouse lék sitt fyrsta tímabil hér á landi með Vík í Mýrdal og skipti svo yfir í Snæfell þar sem hann var í tvö ár. Hann starfar sem kennari í Alþjóðaskólanum í Garðabæ samhliða körfuboltanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×