Körfubolti

Njarðvík semur við tvo Bandaríkjamenn

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
Marcus Van að troða fyrir Central Michigan.
Marcus Van að troða fyrir Central Michigan. MYND:NORDIC PHOTOS/GETTY
Körfuknattleiksdeild UMFN hefur samið við tvo Bandaríkjamenn um að leika með karlaliði félagsins á komandi tímabili í Domino´s deildinni. Þeir Cameron Echols og Travis Holmes sem léku með liðinu síðasta vetur munu ekki snúa aftur í haust en Jonathan Jones og Marcus Van koma í þeirra stað og eru hugsaðir fyrir baráttuna í teignum.

Jonathan Jones er framherji upp á 196 sentímetra sem að lék með Kean háskólanum í þriðju deild NCAA háskólaboltans. Hann útskrifaðist vorið 2011 og skoraði 23,9 stig að jafnaði auk þess að hirða 13,7 fráköst. Hann var með tæplega 60% 2ja stiga nýtingu og var valinn í All-America lið þriðju deildarinnar. Jonathan er 23ja ára gamall og er stíga sín fyrstu skref í atvinnumennsku.

Marcus Van er 201 sentímetri á hæð og leikur í stöðu miðherja. Hann lék með Central Michigan skólanum í 1.deild NCAA en þar var hann einmitt samherji Giordan Watson sem lék með UMFN síðari hluta tímabilsins 2010-2011 og svo með Grindavík í vetur. Marcus er 27 ára gamall.

Marcus skoraði 13,0 stig, tók 8,3 fráköst og varði 1,4 skot að meðaltali í leik á lokaári sínu í skólanum en hann útskrifaðist 2009. Hann kom aðeins við í LEB silfur deildinni á Spáni árið eftir sem og í Pro A í Þýskalandi. Tímabilið 2010-2011 lék hann á Írlandi og var þar með 22,7 stig, reif niður 14,2 fráköst og varði 2,2 skot í leik. Hann var auk þess með rúmlega 68% skotnýtingu.

Leikmennirnir eru væntanlegir til Íslands í haust en Domino´s deild karla hefst sunnudaginn 7. október.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×