Golf

Tinna að spila frábærlega og búin að ná Önnu Sólveigu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tinna Jóhannsdóttir.
Tinna Jóhannsdóttir. Mynd/Seth
Tinna Jóhannsdóttir er komin upp að hlið Önnu Sólveigu Snorradóttur þegar þriðji hringurinn er hálfnaður í meistaraflokki kvenna á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Helli. Það má fylgjast með í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi.

Tinna og Anna Sólveig eru báðar í Keili. Tinna hefur leikið fyrstu tíu holur dagsins á tveimur höggum undir pari en hún fékk fugl á bæði níundu og tíundu holu. Tinna er samtals á sjö höggum yfir pari eins og Anna Sólveig sem var líka í efsta sæti eftir annan daginn ásamt Valdísi Þóru Jónsdóttur. Valdís er aðeins einu höggi á eftir Tinnu og Önnu.

Íslandsmeistarinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR er sjö höggum á eftir efstu konum og Eygló Myrra Óskarsdóttir, sem varð þriðja eftir annan hringinn, er komin niður í 9. sæti enda búin að tapa sjö höggum á fyrstu níu holunum í dag.

Staðan hjá konunum:

1. Tinna Jóhannsdóttir, GK +7

1. Anna Sólveig Snorradóttir, GK +7

3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL +8

4. Sunna Víðisdóttir, GR +11

5. Guðrún Pétursdóttir, GR +12

6. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR +13

7. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR +14

7. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK +14

9. Heiða Guðnadóttir, GKj +15

9. Eygló Myrra Óskarsdóttir, GO +15




Fleiri fréttir

Sjá meira


×