Fótbolti

Alfreð á bekknum í sigri Helsingborgar | Ari Freyr í sigurliði Sundsvall

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd / Heimasíða Helsingborgar
Alfreð Finnbogason var aldrei þessu vant á bekknum þegar Helsingborg lagði Syrianska 3-1 í efstu deild sænska boltans í dag.

Alfreð kom inn á sem varamaður á 72. mínútu en ólíkt undanförnum leikjum tókst honum ekki að skora.

Helsingborg situr í 3. sæti deildarinnar með jafnmörg stig og Malmö í 2. sætinu sem hefur betri markatölu auk þess að eiga leik til góða.

Ari Freyr Skúlason bar fyrirliðabandið í 3-1 sigri Sundsvall á Mjällby. Sundsvall er í 8. sæti deildarinnar með 20 stig.

Þá spilaði Hjörtur Logi Valgarðsson allan leikinn í 5-0 tapi IFK Gautaborgar á útivelli gegn Gefle. Um sannkallaðan botnslag var að ræða.

Gautaborg hefur 17. stig í fimmta neðsta sæti en Gefle 16 stig í þriðja neðsta sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×