Körfubolti

Tómas Heiðar snýr heim | Leikur með Fjölni

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Bakvörðurinn Tómas Heiðar Tómasson leikur með meistaraflokki Fjölnis í körfuknattleik í Domino's-deildinni í vetur. Tómas staðfestir þetta í samtali við Karfan.is.

Tómas Heiðar lék með liði Newberry-háskólans í Bandaríkjunum síðastliðinn vetur ásamt Ægi Þór Steinarssyni.

Tómas Heiðar hefur hins vegar ákveðið að hætta námi við skólann og ganga til liðs við fyrrum félaga sína. Ljóst er að um mikinn styrk er að ræða fyrir Grafarvogsbúa.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×