Golf

Sigurþór og Guðrún Brá leiða í Kiðjaberginu

Guðrún Brá.
Guðrún Brá.
Sigurþór Jónsson úr Golfklúbbi Selfoss og Guðrún Brá Björgvinsdóttir Keili eru efst eftir annan hringinn á fimtma stigamóti Eimskipsmótaraðarinnar.

Sigurþór er með eins höggs forskot á Ólaf Björn Loftsson og Einar Hauk Oskarsson. Sigurþór lék á parinu í dag og er samtals á einu höggi undir pari.

Arnar Snær Hákonarson, sem setti glæsilegt vallarmet, í gær fann sig engan veginn í dag og spilaði á ellefu höggum yfir pari.

Guðrún Brá er á sjö höggum yfir pari og er með fjögurra högga forskot á Signýju Arnórsdóttur, Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur og Ingunni Einarsdóttur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×