Golf

Rory Mcllroy efstur á US PGA

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Rory Mcllroy
Rory Mcllroy
Rory Mcllroy er efstur á US PGA mótinu eftir þrjá daga en leikmenn voru að ljúka síðustu holum þriðja hringsins rétt í þessu. Leik var frestað í gær vegna veðurs og í dag fóru fram síðustu holur þriðja dagsins.

Rory byrjaði mótið vel, spilaði á fimm undir pari en dagur tvö var honum erfiðari þar sem hann lék á þremur höggum yfir pari. Hann svaraði því þá með öðrum hring fimm undir pari og er hann því sjö höggum undir pari fyrir loka hringinn.

Carl Pettersson er þremur höggum eftir Rory og í öðru sæti en þriðja sætinu deila þrír leikmenn, Bo Van Pelt, Trevor Immelman og Adam Scott. Adam Scott er annað stórmótið í röð í toppbaráttunni en hann glutraði niður fjögurra högga forskoti á síðustu metrum Opna breska mótsins fyrir aðeins þremur vikum.

Tiger Woods hafði verið að spila vel á mótinu fram að gærdeginum og var hann fjórum undir pari fyrir þriðja hringinn.Hann átti hinsvegar átti erfiðar fyrri 9 holur og áður en leik var hætt var hann fjórum höggum yfir pari á hringnum. Hann náði hinsvegar að lagfæra stöðu sína á seinni 9 holunum þar sem hann spilaði á tveimur undir pari og er hann því fimm höggum á eftir Rory fyrir lokahringinn.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×