Golf

Axel í 8. sæti og jafnaði met Ólafs: Ekki hægt annað en að vera sáttur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Axel Bóasson var sáttur í mótslok.
Axel Bóasson var sáttur í mótslok. Mynd/Golfsamband Íslands
Axel Bóasson, 22 ára kylfingur úr Keili, varð í 8. til 12. sæti á Evrópumóti áhugamanna í golfi sem lauk á Írlandi í dag. Evrópumótið er eitt sterkasta áhugamannamót sem fram fer á hverju ári og þetta er frábær árangur hjá stráknum.

Axel lék hringina fjóra á 283 höggum eða fimm höggum undir pari en hann endaði sex höggum á eftir sigurvegaranum sem var Rhys Pugh frá Wales.

Axel var einn af fimm kylfingum sem lék á fimm höggum undir pari en hann lék best af þessum kylfingum á lokadeginum eða á tveimur höggum undir pari.

Aðstæður voru býsna erfiðar i dag, um sjö metra vindur á sekúndu og reyndist það flestum keppendum erfitt. Meðalskorið var mun hærra i dag sem gerir árangur Axels enn glæsilegri.

Axel jafnaði með þessu besta árangur Íslendings i mótinu, en Ólafur Mar Sigurðsson hafnaði einnig i 8. sæti árið 2002.

„Ég er bara mjög sáttur með þetta enda ekki annað hægt. Ég lagði upp með það að reyna að komast í gegnum niðurskurðinn, vinna í mínum hlutum og spila rólegt golf. Andlegi þátturinn var líka sterkur í þessu," sagði Axel í viðtali við Ásgeir Erlendsson í kvöldfréttum Stöðvar 2.

„Árangurinn í dag og mótið í heildina var framar öllum væntingum. Ég ætlaði bara að vera rólegur og njóta þess að spila," sagði Axel.

„Lykilatriði númer eitt, tvo og þrjú var að vera slakur og treysta því sem ég var að gera. Sjálfstraustið hjá mér var síðan orðið gríðarlegt á flötunum," sagði Axel.

„Ég var smá smeykur um að ég myndi bara sætta mig við það að vera kominn í gegnum niðurskurðinn í staðinn fyrir að halda áfram. Ég var því sáttur með að ná að halda áfram," sagði Axel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×