Golf

Tiger í efsta sæti með Petterson og Singh þegar PGA-mótið er hálfnað

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Tiger Woods.
Tiger Woods. Mynd/Nordic Photos/Getty
Tiger Woods er að spila vel á PGA-meistaramótinu í golfi og á fínan möguleika á að vinna sitt fyrsta risamót síðan 2008. Woods er í efsta sæti þegar mótið er hálfnað ásamt þeim Vijay Singh og Carl Pettersson. Allir hafa þeir leikið fyrstu 36 holurnar á fjórum höggum undir pari.

Tiger Woods lék annan hringinn á einu höggi undir pari en margir kylfingar lentu þá í vandræðum. Vijay Singh lék reyndar mjög vel eða á 69 höggum (3 högg undir pari) en Carl Pettersson, sem var í forystu eftir fyrsta daginn þurfti að sætta sig við hring upp á tvö högg yfir pari.

Vijay Singh hefur unnið þrjú risamót á ferlinum en hefur eins og Woods þurft að bíða lengi eftir síðasta sigri eða í næstum því fjögur ár. Aðeins fjórir kylfingar náðu að leika undir pari á öðrum hringnum, Woods, Singh og svo þeir Phil Mickelson og Ian Poulter.

Stutta spilið hefur gengið mjög vel hjá Tiger Woods á þessu móti en hann hefur aðeins þurft eitt pútt á 23 af 36 holum PGA-meistaramótsins til þessa. Tiger var í góðum málum á sama tíma á opna bandaríska meistaramótinu á dögunum en gekk þá illa á tveimur síðustu hringunum og endaði í 21. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×