Golf

Garcia með tryggt sæti í Ryder-liðinu

Spænski kylfingurinn Sergio Garcia sigraði á Wyndham meistaramótinu og tryggði sér um leið sæti í Ryder-liði Evrópu. Spánverjar hafa alltaf átt kylfing í liðinu og það breytist ekki núna.

Það voru þeir Seve Ballesteros og Antonio Garrido sem voru fulltrúar Spánverja í fyrsta liðinu árið 1979.

Lengi vel var útlit fyrir að Spánn myndi ekki eiga fulltrúa í fyrsta skipti en Garcia hefur dottið í form upp á síðkastið og tryggt sér sæti.

Það er hörð barátta um sæti í evrópska liðinu og þeir Ian Poulter og Martin Kaymer þurfa væntanlega að treysta á að verða valdir i liðið þar sem þeir hafa ekki tryggt sér sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×