Veiðin í Norðurá loks kominn yfir 900 laxa 9. september 2012 19:58 Hér fylgjast menn spenntir með því þegar Bjarni Júlíusson, formaður SVFR, tók fyrsta lax sumarsins í Norðurá þann 5. júní. Mynd / Trausti Hafliðason
Norðurá er komin yfir 900 laxa sem þýðir að veiðin er ekki jafnslæm og árin 1984 og 1989. Veiðin er aftur á móti sú versta síðan netaveiði í Hvítá var aflögð í kringum 1990. Þetta má lesa á vef Stangaveiðifélags Reykjavíkur. „Holl sem lauk veiðum í Norðurá í Borgarfirði í hádeginu í dag landaði 54 löxum. Fékk hópurinn ána í sjatnandi vatni eftir miklar rigningar. Með þessari prýðisgóðu veiði fór Norðurá yfir 900 laxa markið og því er ljóst að áin skilar meiri veiði en verstu árin á níunda áratugnum. Þó verður að hafa hugfast að veiðin nú stefnir í að vera sú slakasta frá því að netaveiði var aflögð í Hvítá í Borgarfirði upp úr 1990. Sumrin 1984 (856 laxar) og 1989 (867 laxar) eru verstu veiðisumur síðari ára í Norðurá en bæði þessi ár var umtalsverður hluti laxagöngunnar tekinn í net í jökulvatninu. Þó skal hafa hugfast að á móti kemur að veitt var á blandað agn í Norðurá á þessum sumrum en nú er eingöngu brúkuð fluga í Norðurá." Á vef SVFR segir að árnefnd Norðurár hafi hafið veiðar í hádeginu í dag en nefnin lokar ánni formlega. „Því er ljóst að sumarveiðin þetta árið mun verða á bilinu 900-1.000 laxar sem er afleit veiði sé miðað við aflatölur undanfarna tvo áratugi. En nú er þetta laxveiðitímabil að baki í Norðurá og unnendur hennar geta látið sig hlakka til næsta sumars sem verður svo miklu betra en þetta!" segir á vef SVFR.trausti@frettabladid.is
Stangveiði Mest lesið Hlíðarvatn komið í gang og fiskurinn er í hörkutöku Veiði Sumir ennþá að gera góða veiði í Ytri Rangá Veiði Urriðinn mættur við Kárastaði Veiði Líflegt við opnun Grímsár Veiði Lokatölur að koma úr flestum ánum Veiði Urriðinn er vel haldinn í Laxárdalnum Veiði Laxinn mættur í fleiri ár Veiði Heildarveiðin í Veiðivötnum komin í 9712 fiska Veiði Frábært vatn fyrir byrjendur og lengra komna Veiði Tíu risaurriðar í Minnivallalæk Veiði