Fótbolti

Skúli Jón í hóp í fyrsta sinn í fimm mánuði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Skúli Jón, lengst til vinstri, varð Íslandsmeistari með KR í fyrra.
Skúli Jón, lengst til vinstri, varð Íslandsmeistari með KR í fyrra. Mynd/Daníel
Skúli Jón Friðgeirsson var á varamannabekk Elfsborg þegar að liðið vann 1-0 sigur á Örebro í sænsku úrvalsdeildinni í dag.

Þetta er í fyrsta sinn í fimm mánuði sem Skúli Jón er í leikmannahóp liðsins í sænsku úrvalsdeildinni en hann gekkst undir aðgerð í byrjun maí vegna meiðsla í mjöðm.

Skúli Jón gekk í raðir Elfsborg í mars síðastliðnum en hann hafði spilað með KR allan sinn feril.

Elfsborg er á toppi sænsku deildarinnar með 49 stig eftir 25 leiki. Liðið er með tveggja stiga forystu á AIK en Häcken kemur næst með 46 stig og á þar að auki leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×