Fótbolti

Silkeborg með frábæran sigur á Álaborg

Stefán Árni Pálsson skrifar
Einn leikur fór fram í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla en Bjarni Þór Viðarsson og félagar í Silkeborg unnu fínan sigur á Álaborg 2-1 á heimavelli.

Sune Kiilerich skoraði fyrsta mark leiksins eftir aðeins fjórar mínútur en Marvin Pourie kom heimamönnum í 2-0 rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins.

Bjarni Þór Viðarsson lagði upp markið sem var einstaklega vel gert, en hann lék allan leikinn fyrir heimamenn.

Kenneth Emil Petersen minnkaði muninn fyrir gestina korteri fyrir leikslok en það dugði ekki til.

Álaborg er í öðru sæti deildarinnar með 20 stig en Silkeborg í því tíunda með 10 stig. Þetta var því frábær sigur fyrir heimamenn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×