Fótbolti

Aron getur ekki hætt að skora

Aron í leik gegn Englandi.
Aron í leik gegn Englandi.
Aron Jóhannsson var enn eina ferðina á skotskónum með

félagi sínu, AGF, er það sótti SönderjyskE heim í

dönsku úrvalsdeildinni og vann góðan sigur, 0-3.

Aron kom AGF yfir með marki úr vítaspyrnu á 20.

mínútu. Hans tólfta mark í tólf leikjum í vetur.

Aron fór svo af velli 25 mínútum fyrir leikslok.

Hallgrímur Jónasson og Eyjólfur Héðinsson voru ekki í

leikmannahópi SönderjyskE í dag.

AGF er í öðru sæti deildarinnar en SönderjyskE því

sjöunda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×