Fótbolti

Start ætlar að kaupa Guðmund og Matthías

Matthías Vilhjálmsson.
Matthías Vilhjálmsson.
Knattspyrnumennirnir Matthías Vilhjálmsson og Guðmundur Kristjánsson hafa slegið í gegn hjá Start í Noregi og félagið er nú búið að semja við leikmennina sem eru þar í láni.

Það er Morgunblaðið sem greinir frá þessu í dag en þar kemur einnig fram að þó svo leikmennirnir séu búnir að semja við félagið eigi Start enn eftir að semja við félög þeirra - FH og Breiðablik.

Start er í efsta sæti í norsku B-deildinni og stefnir hraðbyrði í úrvalsdeildina. Matthías hefur farið mikinn í markaskorun og er markahæstur í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×