Körfubolti

KFÍ vann á Króknum

Stólarnir bíða enn eftir sínum fyrsta sigri.
Stólarnir bíða enn eftir sínum fyrsta sigri.
KFÍ vann magnaðan sigur, 83-86, á Tindastóli á Sauðárkróki í kvöld í Dominos-deild karla. Þetta var annar tveggja leikja sem fóru fram í deildinni í kvöld.

Þetta var annar sigur Ísfirðinga í þremur leikjum í vetur en Stólarnir hafa ekki farið vel af stað og sitja á botni deildarinnar með þrjú töp.

Úrslit:

Tindastóll-KFÍ 83-86

Tindastóll: George Valentine 16/12 fráköst, Helgi Rafn Viggósson 16/12 fráköst, Helgi Freyr Margeirsson 14, Þröstur Leó Jóhannsson 13/6 stoðsendingar, Isaac Deshon Miles 9/9 stoðsendingar, Friðrik Hreinsson 7, Svavar Atli Birgisson 4, Hreinn Gunnar Birgisson 2, Ingvi Rafn Ingvarsson 2, Sigtryggur Arnar Björnsson 0, Pétur Rúnar Birgisson 0, Sigurður Páll Stefánsson 0.

KFÍ: Momcilo Latinovic 28/7 fráköst, Mirko Stefán Virijevic 21/10 fráköst, Bradford Harry Spencer 15/5 fráköst, Jón Hrafn Baldvinsson 13/9 fráköst/5 stoðsendingar, Christopher Miller-Williams 4/6 fráköst, Pance Ilievski 3, Stefán Diegó Garcia 2, Leó Sigurðsson 0, Jón Kristinn Sævarsson 0, Guðmundur Jóhann Guðmundsson 0, Óskar Kristjánsson 0, Haukur Hreinsson 0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×