Körfubolti

Þórsarar lögðu ÍR-inga í framlengdum leik | Myndir

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Myndir / Valgarður Gíslason
Þór frá Þorlákshöfn vann dramatískan sigur á ÍR-ingum í Hertz-hellinum í 2. umferð Domino's-deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Lokatölurnar urðu 92-95 en jafnt var að loknum venjulegum leiktíma 81-81.

Bæði lið máttu sætta sig við tap í fyrstu umferð og ætluðu að selja sig dýrt í kvöld. Leikurinn var jafn og spennandi frá upphafi til enda. Jafnt var 22-22 að loknum fyrsta leikhluta en í hálfleik leiddu gestirnir með þremur stigum 42-45.

Gestirnir náðu mest níu stiga forystu í síðari hálfleik 42-51 en þá sóttu Breiðhyltingar í sig veðrið. Þeir skoruðu átján stig gegn sjö og leiddu með tveimur stigum, 60-58 að loknum þriðja leikhluta.

Allt var á suðupunkti í fjórða leikhluta. Gestirnir höfðu þriggja stiga forskot þegar Eric James Palm jafnaði metin með þriggja stiga körfu tólf sekúndum fyrir leikslok. Robert Diggs brást bogalistin á hinum endanum og framlengja þurfti leikinn.

Í framlengingunni komust ÍR-inga yfir 92-91 með þriggja stiga körfu Nemanja Sovic 27 sekúndum fyrir lok framlengingar. Góð nýting gestanna á vítalínunni í takt við klaufaskap heimamanna í sókninni sáu til þess að gestirnir tryggðu sér þriggja stiga sigur 95-92.

Robert Diggs fór mikinn í liði gestanna og skoraði 18 stig auk þess að taka 13 fráköst. Benjamin Curtis var stigahæstur með 22 stig Guðmundur Jónsson skoraði 16 stig.

Hjá heimamönnum átti Nemanja Sovic stórleik. Hann skoraði 28 stig en tók auk þess 10 fráköst. Þá hitti hann einkar vel hvort sem var fyrir innan eða utan þriggja stiga línuna eða af vítalínunni. Eric James Palm var einnig atkvæðamikill með 29 stig.

ÍR-Þór Þ. 92-95 (22-22, 20-23, 18-13, 21-23, 11-14)

ÍR: Eric James Palm 29/5 fráköst, Nemanja Sovic 28/10 fráköst, Hreggviður Magnússon 13/5 fráköst, D'Andre Jordan Williams 11/6 fráköst/8 stoðsendingar, Sveinbjörn Claessen 8/4 fráköst, Hjalti Friðriksson 2/4 fráköst, Vilhjálmur Theodór Jónsson 1/5 fráköst.

Þór Þ.: Benjamin Curtis Smith 22/4 fráköst/5 stoðsendingar, Robert Diggs 18/13 fráköst/4 varin skot, Guðmundur Jónsson 16, Darrell Flake 12/13 fráköst, Darri Hilmarsson 11, Grétar Ingi Erlendsson 8, Baldur Þór Ragnarsson 8.



Stöðuna í Domino's-deildinni má sjá hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×