Viðskipti erlent

Nýr iPad í þessum mánuði

Tæknirisinn Apple mun opinbera minni og ódýrari útgáfu af nýjustu iPad-spjaldtölvunni 23. október næstkomandi.
Tæknirisinn Apple mun opinbera minni og ódýrari útgáfu af nýjustu iPad-spjaldtölvunni 23. október næstkomandi. mynd/AFP
Tæknirisinn Apple mun opinbera minni og ódýrari útgáfu af nýjustu iPad-spjaldtölvunni 23. október næstkomandi. Það er tæknifréttamiðillinn AllThingsD sem greinir frá þessu.

Líklegt er að Apple muni bjóða fréttamönnum á sérstaka samkomu í fundarsal Apple í Kaliforníu. Fyrirtækið hefur svipt hulunni af nokkrum byltingarkenndum viðbótum við vörulínu sína í þessum sal, þar á meðal OS X Lion stýrikerfinu, MacBook Air fartölvunni og iPhone 4S snjallsímanum.

Þá hefur tímasetningin einnig vakið athygli en nýjasta spjaldtölva Microsoft, Surface, fer í almenna sölu 26. október.

Samkvæmt heimildum AllThingsD verður þessi nýja útgáfa iPad-spjaldtölvunnar mun minni og nettari en forveri sinn. Snertiskjárinn verður 7.85 tommur að stærð en raftækið sjálft verður þynnra en fyrri útgáfur iPad. Þá verður spjaldtölvan búin Lightning tengibrautinni sem Apple frumsýndi á dögunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×