Golf

Hanson skákaði McIlroy

Svíinn Peter Hanson gerði sér lítið fyrir og vann BMW-meistaramótið í golfi sem fram fór í Shanghai. Hann háði æsispennandi baráttu við efsta mann heimslistans, Rory McIlroy, og hafði betur.

Hanson kláraði á einu höggi betur en Norður-Írinn. Englendingurinn Luke Donald varð þriðja að þessu sinni. Ian Poulter tók fjórða sætið.

Þessi niðurstaða gæti gert það að verkum að McIlroy nái ekki að vera efstur á peningalistanum á bæði PGA- og Evrópumótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×