Körfubolti

Gamall liðsfélagi Jeb Ivey búinn að semja við Njarðvík

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nigel Moore, til vinstri, í leik með Göttingen.
Nigel Moore, til vinstri, í leik með Göttingen. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Njarðvíkingar hafa fengið til sín nýjan bandarískan leikmann í körfuboltanum en þar er um að ræða 31 árs gamlan reynslubolta sem hefur spilað lengi í Þýskalandi og Finnlandi. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.

Nigel Moore er fæddur árið 1981 en hann er 195 sm lítill framherji eða skotbakvörður. Nigel Moore kláraði Alabama A&M University háskólann árið 2003 og byrjaði atvinnumannaferil sinn í Þýskalandi. Hann hefur leikið í Finnlandi undanfarin tvö tímabil með Korihait í efstu deild.

Nigel Moore lék með þýska liðinu Göttingen tímabilið 2007-2008 en þar var samherji hans Jeb Ivey sem hafði árin á undan leikið með Njarðvík en Ivey kom seinna og hjálpaði Snæfellingum að verða Íslandsmeistarar í fyrsta sinn.

Nigel Moore var með 12,9 stig, 6,8 fráköst, 3,0 stoðsendingar og 2,3 stolna bolta að meðaltali með Korihait á síðustu leiktíð en hann var þá að skora 2 þrista að meðaltali í leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×