Golf

John Daly kastaði pútternum út í skóg

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
John Daly
John Daly AP
John Daly er einn þekktasti kylfingur heims en hann þarf að stóla á að fá boð frá styrktaraðilum til þess að komast inn á PGA mótin í Bandaríkjunum og hann hefur reynt fyrir sér á Evrópumótaröðinni. Daly var langt frá sínu besta á opna Hong Kong meistaramótinu sem lauk um helgina. Þar missti hann stjórn á skapi sínu þar sem hann kastaði pútternum sínum út í skóg.

Daly var ósáttur þá truflun sem hann varð fyrir þegar áhorfendur trufluðu hann þar sem þeir voru að taka myndir af honum í miðri keppni. Daly var áminntur fyrir atvikið af mótshöldurum.

Daly segir í Twitter-færslu að ástandið á golfvellinum hafi verið til skammar. Daly komst ekki í gegnum niðurskurðinn að loknum öðrum keppnisdegi, en hann lék á 72 og 75 höggum. Spánverjinn Miguel Angel Jimenez sigraði á mótinu en hann er elsti kylfingurinn sem hefur sigrað á móti á Evrópumótaröðinni, 48 ára gamall og 318 daga gamall.

Á þessu tímabili hefur Daly komist í gegnum niðurskurðinn á átta af alls tólf mótum sem hann hefur tekið þátt í. Besti árangur hans er fjórða sætið á Katar meistaramótinu sem fram fór í febrúar. Daly lék á 15 mótum á PGA mótaröðinni á þessu ári, besti árangur hans var 15. sætið. Hann fékk um 57 milljónir kr. í verðlaunafá á PGA mótaröðinni á síðasta tímabili og um 47 milljónir kr. á Evrópumótaröðinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×