Sport

Enginn Íslendingur í undanúrslit

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Kári Gunnarsson.
Kári Gunnarsson. Mynd/Badmintonsamband Íslands
Kári Gunnarsson er úr leik í einliðaleik karla á Iceland International-mótinu í badminton. Hann tapaði fyrir Yim Jong Woo frá Suður-Kóreu og tapaði í tveimur lotum, 21-14 og 21-5.

Þar með hafa allir Íslendingar lokið leik í bæði einliðaleik karla og kvenna.

Það er þó ljóst að íslenskt par muni keppa til úrslita í tvenndarleik en þrjú íslensk pör leika í undanúrslitum í dag.

Ragna Ingólfsdóttir hefur verið sigursæl á þessu móti en hún hætti eftir Ólympíuleikana í London í sumar.

Hún vann eina viðureign í London, gegn Akvile Stapusaityte frá Litháen. Sú keppir nú á mótinu og er komin í undanúrslit.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×