Golf

Kaymer og Schwartzel jafnir fyrir síðustu níu holurnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Charl Schwarzl gengur allt í haginn á lokahringnum.
Charl Schwarzl gengur allt í haginn á lokahringnum. Nordicphotos/Getty
Þjóðverjinn Martin Kaymer og Suður-Afríkumaðurinn Charl Schwartzel eru efstir og jafnir á Nedbank Challenge mótinu í golfi þegar níu holur eru óspilaðar.

Kaymer hafði eins höggs forskot fyrir lokahringinn en Schwartzel hefur spilað fyrri níu holurnar á þremur undir pari og náð Þjóðverjanum.

Louis Oosthuizen og Bill Has eru tveimur höggum á eftir forystusauðunum á fjórum undir pari. Stöðuna í mótinu má sjá hér.

Bein útsending frá mótinu stendur yfir á Stöð 2 Sport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×