Áfram kristmenn krossmenn Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 7. mars 2012 10:00
Bíó. Machine Gun Preacher. Leikstjórn: Marc Forster. Leikarar: Gerard Butler, Michelle Monaghan, Michael Shannon, Souléymane Sy Savané, Kathy Baker. Sam Childers er ofbeldishneigður sprautufíkill sem finnur Jesúm og snýr við blaðinu. Hann ferðast til Suður-Súdan en blöskrar vosbúðin og ákveður því að byggja munaðarleysingjahæli. Eftir tíðar heimsóknir blóðþyrstra skæruliða grípur Sámur til vopna og áður en langt um líður nær hann að safna í fámenna herdeild til að verja hælið og börnin. Miskunnarlaust og tilgangslaust ofbeldið tekur þó sinn toll og geðheilsu Sáms fer sífellt hrakandi. Fyrri hluti Machine Gun Preacher er áhugaverður. Mér sýndist stefna í hressilega exploitation-mynd að hætti Krossins og fjaðurhnífsins með Pat Boone, nema í léttum dúr, en fljótlega rann það upp fyrir mér að tætarapresturinn tók sig alvarlega og gott betur. Butler er mjög frambærilegur dramatískur leikari og í eyrum óreynda Íslendingsins hljómar Suðurríkjahreimurinn hans sannfærandi þrátt fyrir skoskan uppruna leikarans. En myndin dregst á langinn og eftir stendur fremur ófullnægjandi hræringur, búinn til úr linsoðnum siðferðisboðskap og hrottafengnum blóðsúthellingum í anda myndanna um Jón Rambó. Ég ætla þó ekki að rakka niður ótvírætt skemmtanagildi myndarinnar á köflum, en þessi sannsögulega aðalpersóna er óumdeilanlega athyglisverð og prýðilegur efniviður í kvikmynd. Stærsta vandamálið er losaralegt handritið sem veit ómögulega hvað það vill vera og hvað það vill segja, og því er útkoman eins og uppkast að mynd frekar en fullklárað listaverk. Þó vil ég sérstaklega hrósa söngvaranum Chris Cornell, en hann á afskaplega fallegt lag í lok myndarinnar. Niðurstaða: Óvenjuleg mynd sem fer vel af stað en tapar áttum. Butler nær þó að ýta skrjóðnum langleiðina heim.
Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira