Körfubolti

Pressan er á Grindavík og KR

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
KR-ingar fagna hér titlinum sem þeir unnu síðast vor.
KR-ingar fagna hér titlinum sem þeir unnu síðast vor. Mynd/Anton
Úrslitakeppni Iceland Express-deildar karla hefst í kvöld með tveimur leikjum þar sem tvö efstu lið deildarkeppninnar, Grindavík og KR, fá Njarðvík og Tindastól í heimsókn. Það búast allir við því að Grindavík og KR komist áfram án mikilla vandræða og fari langt í úrslitakeppninni í ár.

Pressan er ekki auðveld viðureignar og undanfarin tvö ár hafa hvorki deildarmeistararnir né Íslandsmeistararnir komist alla leið í úrslitaeinvígið.

Grindvíkingar hafa verið í nokkrum sérflokki í deildinni í vetur, tryggðu sér deildarmeistaratitilinn þegar fjórir leikir voru eftir og enduðu með átta stigum meira en næsta lið. Grindavík mætir nágrönnum sínum í Njarðvík í átta liða úrslitunum.

Grindvíkingar unnu báða leikina við Njarðvík, þar af þann seinni með 22 stiga mun í Ljónagryfjunni fyrir aðeins tíu dögum. Sá sigur kom eftir smá hikst en liðið tapaði tveimur leikjum í röð eftir að deildarmeistaratitillinn var í höfn.

Það hefur verið beðið lengi eftir Íslandsmeistaratitlinum í Grindavík en liðið hefur lent fjórum sinnum í öðru sæti síðan félag vann sinn fyrsta og eina Íslandsmeistaratitil árið 1996.

Þetta er í fjórða sinn sem Grindvíkingar mæta í úrslitakeppnina sem deildarmeistarar og heimavallarrétt út alla keppnina. Það hefur ekki skilað Íslandsmeistaratitli í hin þrjú skiptin og liðið féll meira segja út í átta liða úrslitum sem deildarmeistari árið 1998.

KR - Grindavík Powerade-bikar karla körfubolti karfa bikarinn
Deildarmeistaratitillinn er líka langt frá því að vera ávísun á stóra titilinn því aðeins þrír af síðustu tíu deildarmeisturum hafa orðið Íslandsmeistarar.

KR-ingar fá Tindastól í átta liða úrslitunum. KR-ingar eru núverandi Íslandsmeistarar en þurfa að brjóta blað í sögu félagsins ætli þeir að verja titilinn. KR hefur aldrei unnið titilinn tvö ár í röð eftir að úrslitakeppnin var sett á laggirnar og vann síðast tvö ár í röð árið 1979.

Reyndar hefur ekki bara KR-ingum gengið illa að verja Íslandsmeistaratitilinn í karlakörfunni því það hefur ekki gerst síðan Keflvíkingar unnu þrjú ár í röð frá 2003 til 2005.

KR-ingar lentu í miklum vandræðum í átta liða úrslitunum á árunum 2006 til 2008 og féllu þeir óvænt úr leik á móti ÍR vorið 2008. Síðan þá hafa KR-ingar unnið alla sex leiki sína í átta liða úrslitunum.

Það verður ekki auðvelt að sækja sigur á Króknum enda hafa Stólarnir unnið fimm síðustu heimaleiki sína í úrslitakeppni og töpuðu síðast í Síkinu í úrslitakeppni fyrir tíu árum.

Eitt af sárustu töpum KR-liðsins í vetur kom einmitt á móti Tindastól á Króknum í undanúrslitaleik bikarsins í febrúarbyrjun. KR-ingar hafa þegar unnið Stólanna einu sinni örugglega eftir það en sá leikur fór fram í DHL-höllinni.

Nú bíða margir spenntir eftir því hvernig titilpressan fer í Grindvíkinga og KR-inga að þessu sinni. Liðin hafa allt til alls til að komast langt í ár og sumir sjá í hillingum úrslitaeinvígi eins og það hjá liðunum fyrir þremur árum þegar KR-ingar unnu á síðustu sekúndu í oddaleik.

Átta liða úrslitin reyna oft mikið á einbeitingu „betri" liðanna enda þarf bara að vinna tvo leiki og með því að stela sigri í fyrsta leiknum er pressan á hærra skrifaða liðið orðin gífurleg. Hvort það verða óvænt úrslit í kvöld verður hins vegar að koma í ljós.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×