Golf

Masters 2012: Grill, blóðmör og ostborgarar

Charl Schwartzel bauð upp á grillstemningu í anda Suður-Afríku á Augusta.
Charl Schwartzel bauð upp á grillstemningu í anda Suður-Afríku á Augusta.
Ein af fjölmörgum hefðum á Meistaramótinu er að sigurvegari frá árinu áður býður í mat í aðdraganda mótsins. Þessi hefð komst á árið 1952 og hefur haldist allar götur síðan. Í ár var því komið að Charl Schwartzel að velja matinnsem borinn var á borð fyrir keppendur og fáeina útvalda í Agusta-klúbbnum í gærkvöldi.

Schwartzel, sem er frá Suður-Afríku, sendi inn beiðni til hæstráðenda hjá klúbbnum um að fá að halda óformlegri veislu en tíðkast við þessi tímamót. Grillið ætti að vera í aðalhlutverki og þar yrðu framreiddar steikur, lambakjöt og pylsur.

Matseðlarnir hafa verið afar fjölbreyttir í gegnum tíðina, og reyna sigurvegararnir oftar en ekki að flétta matarhefðir heimalandsins inn í matseðilinn. Þannig bauð Englendingurinn Nick Faldo árið 1997 upp á fisk og franskar og Skotinn Sandy Lyle bauð upp á skoskan blóðmör (e. haggis) árið 1989.

Tiger Woods leitaði svo á náðir McDonalds þegar hann fékk að ráða ferðinni árið 1998, en þá var einfaldlega boðið upp á ostborgara, franskar og mjólkurhristing.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×