Körfubolti

Þórsarar eru engir venjulegir nýliðar

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Darrin Govens hefur skorað 27,7 stig í leik og hitt úr 60 prósentum af þriggja stiga skotum sínum (12 af 20) í þremur fyrstu leikjum einvígisins á móti KR.
Darrin Govens hefur skorað 27,7 stig í leik og hitt úr 60 prósentum af þriggja stiga skotum sínum (12 af 20) í þremur fyrstu leikjum einvígisins á móti KR. Mynd/Valli
Þórsarar úr Þorlákshöfn halda áfram að skrifa söguna á sínu fyrsta ári í úrslitakeppni karla en þeir eru komnir í 2-1 á móti Íslandsmeisturum KR í undanúrslitaeinvígi Iceland Express-deildar karla.

Í kvöld er sæti í lokaúrslitunum í boði þegar KR-ingar þurfa að berjast fyrir lífi sínu í Icelandic Glacial-höllinni. Leikurinn hefst klukkan 19.15 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

KR vann fyrsta leikinn en Þórsliðið hefur unnið tvo síðustu leikina örugglega. Með því urðu lærisveinarnir hans Benedikts Guðmundssonar fyrstu nýliðarnir í sögu úrslitakeppni karla til þess að vinna tvo leiki í röð í úrslitakeppni. Þeir voru einnig fyrstir til þess að vinna leik í undanúrslitum síðan úrslitakeppnin varð að átta liða keppni árið 1994 en auk þess að vera nýliðar þá er þetta einnig í fyrsta sinn frá upphafi sem Þórsarar eiga lið í úrslitakeppninni.

Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórsliðsins, var reyndar nálægt því að afreka þetta með Fjölni fyrir sjö árum. Fjölnir vann þá oddaleik á móti Skallagrími í átta liða úrslitunum en tapaði síðan í framlengingu á móti Snæfelli í fyrsta leik í undanúrslitum. Nú er Benedikt á góðri leið með að slá út sína gömlu lærisveina í KR.

Tapi KR-ingar í kvöld eru þeir komnir í sumarfrí en þeir yrðu þá fjórðu Íslandsmeistararnir í röð sem detta út úr undanúrslitunum árið eftir. Íslandsmeistarar hafa ekki komist í lokaúrslitin árið eftir síðan Njarðvíkingar gerðu það 2007 en síðastir til að verja Íslandsmeisaratitilinn voru Keflvíkingar þegar þeir unnu þrjú ár í röð frá 2003 til 2005.

Sigurleikir nýliða og næsti leikur á eftir:
Mynd/Valli
ÍA Undanúrslit 1994

91-80 sigur á Grindavík í framlenginu í leik tvö

Næsti: 77-94 tap fyrir Grindavík í oddaleik

Breiðablik 8 liða úrslit 2002

73-70 sigur á Njarðvík í leik tvö

Næsti: 92-99 tap fyrir Njarðvík í oddaleik

Fjölnir 8 liða úrslit 2005

76-74 sigur á Skallagrími í leik eitt

Næsti: 81-93 tap fyrir Skallagrími í leik tvö

Skallagrímur 8 liða úrslit 2005

93-81 sigur á Fjölni í leik tvö

Næsti: 70-72 tap fyrir Fjölni í oddaleik

Fjölnir 8 liða úrslit 2005

72-70 sigur á Skallagrími í oddaleik

Næsti: 101-103 tap fyrir Snæfelli í framlengdum leik eitt í undanúrslitum

Haukar 8 liða úrslit 2011

77-67 sigur á Snæfelli í leik tvö

Næsti: 73-87 tap fyrir Snæfelli í oddaleik

Þór Þorlákshöfn 8 liða úrslit 2012

82-77 sigur á Snæfelli í leik eitt

Næsti: 84-94 tap fyrir Snæfelli í leik tvö

Þór Þorlákshöfn 8 liða úrslit 2012

72-65 sigur á Snæfelli í oddaleik

Næsti: 79-82 tap fyrir KR í leik eitt í undanúrslitum

Þór Þorlákshöfn Undanúrslit 2012

94-76 sigur á KR í leik tvö

Næsti: 100-86 sigur á KR í leik þrjú




Fleiri fréttir

Sjá meira


×