Þessar spurningar eru mjög algengar hjá ungu fólki sem finnur fyrir vaxandi fiðringi en veit ekki hvernig best er að fá útrás og af hverju tilfinningarnar geta verið svona ólíkar. Stundum er fullnæging ótrúlega góð og gersamlega tæmandi, stundum er hún varla til staðar og stundum er hún bara allt í lagi, ekkert spes. Stundum fá strákar sáðlát og stundum ekki. Stundum heyrast háværar stunur en stundum bara andvarp. Þessar hugleiðingar eru mér hugleiknar því orð geta átt erfitt með að útskýra þetta fyllilega og fyrir ungum áköfum hugum þarf oft eitthvað meira og haldbærara, jafnvel myndræna útlistun.
Ég lá því á netinu og leitaði að myndum sem mér fannst lýsa kynlífi og fullnægingu. Ég týndi til myndir af nautnafullum mat eins og súkkulaðiköku þar sem bráðið súkkulaði lak úr kjarnanum; krúttlegum bollakökum, bleikum kandífloss, súkkulaðihúðuðu jarðarberi, og nammi með mismunandi ávaxtabragði. Þannig er kynlíf nautnafullt en einnig sætt, sykurhúðað, óvænt og krúttlegt. Svo týndi ég til myndir af hraðskreiðum sportbíl, eldsloga, rússíbana og flugeldum.
Kynlíf getur nefnilega komið mann alveg á hvolf, keyrt upp áreynsluna og kveikt á hverri einustu eldheitu tilfinningu í líkamanum. Þá fannst mér viðeigandi að hafa skælbrosandi sól, fljúgandi svín og kettlinga að kúra. Kynlíf færir manni gleði, hlýju, og notalega tilfinningu í kroppinn og sálina. Ég setti einnig inn mynd af hlæjandi kalli því kynlíf er fyndið og skemmtilegt og það verður enn betra ef húmorinn er með í för.
