Bara örfá dæmi Erla Hlynsdóttir skrifar 19. júní 2012 09:30 Vinkonu minni hefur verið nauðgað þrisvar. Hún lagði aldrei fram kæru. Hún er lesbía. Einn af þeim sem nauðguðu henni var æskuvinur hennar. Hann vissi að hún var lesbía en var samt sannfærður um að ef hún fengi alvöru karlmann inn í sig, þá myndi hún skipta um skoðun. Hún var áfengisdauð þegar hann tók þessa ákvörðun. Þegar hún vaknaði með hann inni í sér fannst henni sem heimur hennar hefði hrunið. Hún hætti að tala við „vin" sinn. En hún vissi að hann var góður gaur og lagði ekki fram kæru. Hún vissi að hann meinti þetta ekki. Ég var um tvítugt þegar ég húkkaði mér far eftir djammið. Þeir voru tveir sem stoppuðu, afskaplega indælir. Annar keyrði og hinn sat aftur í hjá mér. Þegar hann reyndi að nauðga mér fór ég að gráta. Hann stoppaði samt ekki og ég man hvað ég var hissa. Ég var svo hissa á því að einhver vildi ríða grátandi stelpu. Á meðan hann var að klæða mig úr buxunum reyndi ég að finna símann minn. Ég barðist með fótunum en leitaði að símanum mínum því í einhverjum veruleika sá ég fyrir mér að ég myndi geta hringt á hjálp. Ég kýldi hann og sparkaði, ég opnaði hurðina á bílnum á meðan við vorum á ferð og ég reyndi að henda mér út úr bílnum á allt of mikilli ferð. Það endaði með því að bílstjórinn stoppaði og ég hljóp út. Honum hefur væntanlega verið annt um bílhurðina. Aldrei sagði ég mínum nánustu frá þessu. Þeim fannst ég óábyrg að týna símanum mínum. Það var löngu áður sem ég fór á mína fyrstu útihátíð. Þar hitti ég stelpu sem ég kannaðist við. Hún var í fylgd nokkurra drengja. Hún var full. Ég kastaði kveðju á hana og hélt áfram. Ég gleymi því aldrei þegar ég heyrði að henni hefði verið nauðgað af átta karlmönnum. Mér fannst ég hafa átt að koma henni til bjargar. En þetta var ekki mér að kenna. Þetta var ekki henni að kenna. Þetta voru þeir, sem ákváðu saman, átta drengir, að nauðga einni stelpu. Þetta eru bara svona örfá dæmi. Hvað þekkir þú marga sem hefur verið nauðgað? P.s.:Kunningjakona mín sagði mér um daginn að hún þekkti engan sem hefði verið nauðgað. Ég sagði henni að hún vissi þá bara ekki af því. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Erla Hlynsdóttir Mest lesið Vantraust Flokks fólksins á Viðreisn Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hví borgar útgerðin – ekki malarnáman? Guðmundur Edgarsson Skoðun 48 daga blekking: Loforð sem leiðir til lögbrota? Svanur Guðmundsson Skoðun Ómeðvituð vörn í orðræðu – þegar vald ver sjálft sig Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Ertu nú alveg viss um að hafa læst hurðinni? Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun Hverjir eiga Ísland? Jón Baldvin Hannibalsson Skoðun Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun Verið öll hjartanlega velkomin á Unglingalandsmót á Egilsstöðum Jónína Brynjólfsdóttir Skoðun Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun
Frá vinnuþræli til ríkisborgara: Ég er innflytjandi sem þið getið ekki losnað við Ian McDonald Skoðun
Tóbakslausar nikótínvörur - Tímabært að horfast í augu við staðreyndir Bjarni Freyr Guðmundsson Skoðun
Í nafni „sanngirni“ brenndi ríkisstjórn 230 milljörðum – lífeyrir landsmanna fór á bálið Elliði Vignisson Skoðun