Buslað í barnalauginni Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 25. júní 2012 11:30
What to Expect When You're Expecting. Leikstjórn: Kirk Jones. Leikarar: Cameron Diaz, Jennifer Lopez, Elizabeth Banks, Ben Falcone, Chace Crawford, Brooklyn Decker, Anna Kendrick, Dennis Quaid, Chris Rock, Rebel Wilson. Gamanmyndin What to Expect When You're Expecting er byggð á gamalli amerískri óléttuhandbók og snertir á helstu flötum þess að ganga með barn og koma því í heiminn. Persónurnar eru svo margar að mér myndi ekki endast opnan í að útlista nánar hverjar þeirra ganga í gegnum hvað. Rauði þráðurinn virðist vera sá að allir vilji eignast börn en aðferðirnar og aðdragandinn séu mismunandi eftir hverjum og einum. Þegar foreldrið heldur svo á glænýju og glansandi afkvæminu í fyrsta sinn finnst því þetta allt saman hafa verið þess virði. Hér er fullt af hæfileikum til staðar og myndin verður aldrei leiðinleg. Hún inniheldur hins vegar svo margar persónur að óhjákvæmilega heldur hún sig í grunnu lauginni að mestu. Þetta sést best á sögunni um parið sem missir fóstur. Okkur er ekki gefinn tími í upphafi til að kynnast þeim og samgleðjast. Fósturlátið hefur því litla dramatíska vigt og áður en áhorfandinn fer að brjóta heilann of mikið er klippt yfir á Chris Rock að segja eitthvað fyndið. En fyrst við erum að tala um húmor þá er hann í hæfilegu magni hér. Fyrrnefndur Rock er ágætur, hin íturvaxna Rebel Wilson er skemmtileg (eins og íturvöxnum gamanmyndakonum ber að vera) en það er hinn lítt þekkti Ben Falcone sem á bestu atriðin hér, bæði í gríndeildinni og dramatíkinni. Körfuboltapabbar fá líka óvæntan glaðning í upphafi myndar þegar ónefnd NBA-hetja tekur nokkur dansspor. Sögurnar tvinnast saman í lokin og allir fá að fara heim með litla kraftaverkið sitt. Og auðvitað er ekki hjá því komist að bauna því á barnleysingjana að þeir kynnist ekki sönnum kærleika fyrr en þeir drullast til að afrita erfðamengi sitt. Það má svo sem vera að það sé rétt. Ég hef enn ekki hugmynd um margt af því sem þungun hefur í för með sér, þrátt fyrir að hafa horft á What to Expect When You're Expecting. Kannski þarf maður að lesa bókina líka. Niðurstaða: Ágætis óléttugrín sem skilur þó alla eftir ósnortna.
Mest lesið Hafi sagst ætla að svíkja John Snorra Lífið Meirihluti stjórnar Rúv vill sniðganga Eurovision Lífið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Sótti kvittunina í ruslið og vann draumaferð til Ástralíu Lífið samstarf Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Mikil þátttaka í Íslandsmóti fyrirtækja í Kviss Lífið samstarf Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Bransafólk í blússandi fíling Bíó og sjónvarp Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Fékk innblástur fyrir Bleiku slaufunni í eigin meðferð Tíska og hönnun Fleiri fréttir Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira