Körfubolti

Formaður KKÍ: Þurfum að endurskoða vinnubrögð okkar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hörður Axel tók félagslið fram yfir landsliðið.
fréttablaðið/daníel
Hörður Axel tók félagslið fram yfir landsliðið. fréttablaðið/daníel
Hörður Axel Vilhjálmsson, landsliðsmaður Íslands í körfubolta, hefur dregið sig úr æfingahópi íslenska landsliðsins sem tekur þátt í undankeppni Evrópumóts karlalandsliða í ágúst og september. Hörður heldur þess í stað til móts við félag sitt Mitteldeutscher BC í efstu deild þýska körfuboltans og æfir með liðinu á undirbúningstímabilinu.

Átján manna æfingahópur Íslands, sem æfði af krafti í júní, hóf æfingar á nýjan leik í gær manni færri. Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, segist ekki reikna með að leikmaður verði kallaður inn í æfingahópinn í stað Harðar. Tólf leikmenn munu skipa lokahópinn sem spilar fyrir Íslands hönd í undankeppninni.

Hannes segir stjórn KKÍ og afreksnefnd þurfa að endurskoða vinnubrögð sín.

„Reglurnar hjá Körfuknattleikssambandi Evrópu (FIBA) eru þannig að við eigum leikmennina okkar yfir sumartímann. Þetta er spurning hversu mikið við viljum ganga á hag leikmannsins," segir Hannes.

„Við ætlum ekki að standa í vegi fyrir Herði í þessu tilfelli en þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta gerist hjá okkur," bætir Hannes við og segir A-landsliðið auk yngri landsliða vera glugga fyrir leikmenn til að koma sér á framfæri erlendis. Þannig hafi margir íslenskir leikmenn komist í atvinnumennsku.

„Við teljum það gott fyrir íslenskan körfubolta að eiga atvinnumenn og höfum því ekki staðið í vegi fyrir okkar leikmönnum. En við höfum heldur ekki átt marga atvinnumenn undanfarin ár," segir Hannes og bætir við að þó fjölgun þeirra sé mikið fagnaðarefni fyrir íslenskan körfuknattleik megi það ekki koma niður á landsliðinu.

Í vöxt hefur færst hjá atvinnumönnum í íþróttum undanfarin ár að gefa ekki kost á sér í landslið þjóða sinna. Leikmenn fá laun sín greidd hjá félögum sínum sem óttast aukið álag og meiðslahættu sem fyrir er í landsliðsverkefnum leikmanna sinna.

„Félögin geta ekki sett leikmönnum sínum afarkosti. Auðvitað er þetta á endanum persónuleg ákvörðun hvers og eins leikmanns," segir Hannes sem er þó meðvitaður um að leikmenn séu oftar en ekki undir mikilli pressu frá félögum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×