Körfubolti

Logi er veikur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Logi Gunnarsson er leikja- og stigahæsti leikmaður landsliðsins.
Fréttablaðið/anton
Logi Gunnarsson er leikja- og stigahæsti leikmaður landsliðsins. Fréttablaðið/anton
Logi Gunnarsson verður ekki með íslenska körfuboltalandsliðinu þegar liðið mætir Slóvakíu á laugardaginn.

Landsliðið kom til Slóvakíu í gær eftir langt ferðalag en báðar þjóðir töpuðu sínum fyrsta leik í Evrópukeppninni, Ísland á heimavelli á móti Serbíu en Slóvakía á útivelli í Eistlandi.

Logi, leikjahæsti leikmaður landsliðsins, veiktist eftir Serbíuleikinn og eftir skoðun í fyrrakvöld var ekki talið skynsamlegt að hann myndi ferðast með liðinu. Það var enn möguleiki að hann kæmi til móts við strákana í gær en að lokum var tekin sú sameiginlega ákvörðun að Logi myndi hvílast og ná sér góðum fyrir heimaleikinn á móti Ísrael á þriðjudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×