Fjólubláar kýr í Háskólabíói í næstu viku magnusl@frettabladid.is skrifar 21. nóvember 2012 09:00 Seth Godin Bandaríski markaðsgúrúinn Seth Godin hefur gefið út fimmtán metsölubækur um markaðsmál en meðal þeirra þekktari eru Purple Cow, Unleashing the Ideavirus og The Dip. Þá er von á fjórum nýjum bókum frá honum.
Einn frægasti markaðsmaður heims, Bandaríkjamaðurinn Seth Godin, er væntanlegur til landsins. Godin mun halda fyrirlestur í Háskólabíói eftir átta daga á vegum Ímarks, félags íslensks markaðsfólks. Markaðurinn ræddi við Godin vegna komu hans til Íslands. „Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Invisible or Remarkable?". Í honum ætla ég að tala um margar þeirra hugmynda sem hafa verið mér hugleiknar. Mér hefur til dæmis sýnst að ýmsir haldi að fátt hafi breyst í heiminum á síðustu árum annað en að heimurinn hafi orðið örlítið hraðari," segir Godin og heldur áfram: „Í raun og veru er að eiga sér stað bylting sem er að ganga af hinni iðnvæddu veröld 20. aldar dauðri. En í hverju felst byltingin? Við þurfum að svara því áður en við getum áttað okkur á því hvernig ber að fóta sig í breyttum heimi." Godin segir að í hinni iðnvæddu veröld 20. aldar hafi bæði menn og fyrirtæki notið góðs af fylgispekt og undanlátssemi. Menn hafi reist verksmiðjur og búið til kerfi sem voru áreiðanleg en á sama tíma leiðinleg. Niðurstaðan hafi verið meðalgóðar vörur framleiddar fyrir venjulegt fólk. „Skyndilega virkar þessi nálgun ekki lengur. Nú keppast menn við að búa til sem ódýrastar vörur sem verða fyrir vikið oft óspennandi. Því verður erfitt að kynna vörurnar einfaldlega vegna þess að fólk er hætt að nenna að hlusta á hjal um óspennandi vörur. Nú til dags er því að eiga sér stað bylting þar sem frumlegar og framúrskarandi vörur og þjónusta, hlutir sem eru raunverulega verðmætir, skilja sig frá öðrum vörum. Þannig vörur er auðvelt að kynna og þær skapa umtal sem hefðbundnari vörur gera ekki. Þessi einfalda innsýn getur verið leiðarljós inn í það sem ég hef kallað tengslahagkerfið („The Connection Economy") sem tekur við af gamla hagkerfinu og hvar verðmæti eru sköpuð á aðra vegu." Varan sem markaðsherferðGodin hefur skrifað um hvernig hugmyndir berast manna á milli í nútímasamfélagi. Í því samhengi hefur hann lagt áherslu á að framúrskarandi vörur njóti þess að vera spennandi með því að skapa umtal. Þess vegna sé mikilvægara en nokkru sinni að skapa raunverulega verðmætar vörur. En hvert er þá hlutverk markaðsfólks? „Ég held að markaðsstarf sem byggir á því að ónáða fólk sé einfaldlega ekki hagkvæmt lengur. Það borgar sig ekki að velja bara einhvern hóp, senda honum alls konar markaðsefni og vonast eftir tekjum," segir Godin og bætir við: „Framtíðin tilheyrir markaðsfólki sem getur í fyrsta lagi greint hvar spurn eftir markaðsefni er og er jafnframt meðvitað um hvað þarf til að svala þeirri eftirspurn. Til þess þarf markaðsfólk að átta sig á hvernig það getur ræktað tengsl við neytendur, það er sáð fræjum, vökvað og hlúð að neytendum. Þá þarf það að skilja að hlutverk markaðsmannsins er að eiga samstarf við markaðinn en ekki að sigra hann. Þetta snýst um að virkja hópinn sem þú vilt ná til en besta leiðin til þess getur jafnvel verið að halda sig til hlés og leyfa hópnum einfaldlega að spjalla." Godin segir vandann þann að markaðsfólk hefji sína vinnu yfirleitt þegar varan sem á að markaðssetja er fullkláruð. Hann telur hins vegar að markaðsfólk geti skapað verðmæti með því að koma fyrr að málum. „Þetta er í raun hin einfalda hugmynd sem ég hef kallað fjólubláu kúna. Varan sjálf er markaðsherferðin. Með öðrum orðum er mikilvægt að vera með vöru sem er verð athygli, ástríðu og tengsla við fólk. Of oft er markaðsfólk einfaldlega að spinna í kringum meðalgóðar vörur sem eru markaðssettar fyrir venjulegt fólk. Ég held að við getum gert betur og skapað verðmæti fyrr í ferlinu," segir Godin.
Fréttir Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira