Körfubolti

Magnús Þór vann þriggja stiga keppnina eftir bráðabana

Magnús með verðlaunin sín ásamt formanni KKÍ, Hannesi Jónssyni.
Magnús með verðlaunin sín ásamt formanni KKÍ, Hannesi Jónssyni. mynd/kkí
Keflvíkingurinn Magnús Þór Gunnarsson vann sigur í þriggja stiga keppninni á Stjörnuleik KKÍ sem fram fór í Ásgarði í dag.

Hann vann eftir æsispennandi keppni við ÍR-inginn Eric James Palm en framlengja þurfti leik þeirra. Magnús vann 13-8 í bráðabana en báðir náðu 13 stigum í úrslitunum.

Brynjar Þór Björnsson KR-ingur vann forkeppnina en fann sig ekki í úrslitunum þar sem hann fékk aðeins sex stig.

Billy Baptist úr Keflavík er troðslukóngurinn 2013 en hann vann Marcus Van í úrslitum 28-23.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×