Grindvíkingar sóttu tvö stig í Hólminn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. janúar 2013 21:04 Jóhann Árni Ólafsson Mynd/Vilhelm
Frábær fyrsti og fjórði leikhluti skilaði Grindvíkingum sex stiga sigri á Snæfelli, 90-84, í Stykkishólmi í 13. umferð Dominos-deild karla í kvöld en liðin voru jöfn á toppnum fyrir leikinn. Grindavík hefur unnið báða leikina á móti Snæfelli í vetur sem gæti reynst liðinu afar dýrmætt í æsispennandi toppbaráttu deildarinnar. Grindavík vann fyrsta leikhlutann 24-15 og fjórða leikhlutann 30-18 en Snæfellingar voru hinsvegar mun betri í öðrum og þriðja leikhlutanum. Jóhann Árni Ólafsson átti frábæran leik hjá Grindavík og skoraði 23 stig en Þorleifur Ólafsson var með 18 stig og 5 stoðsendingar. Jay Threatt var með 23 stig og 9 stoðsendingar hjá Snæfelli og Asim McQueen skoraði 22 stig og tók 12 fráköst. Grindvíkingar byrjuðu leikinn frábærlega og voru komnir í 7-0 eftir aðeins 65 sekúndur. Jóhann Árni Ólafsson skoraði öll sjö stigin. Grindavík var með níu stiga forskot, 24-15, við lok fyrsta leikhlutans. Snæfellingar náðu að minnka muninn niður í fimm stig fyrir hlé en staðan var 45-40 fyrir Grindavík í hálfleik. Grindvíkingar komust mest ellefu stigum yfir í þriðja leikhlutanum en Snæfellsliðið náði frábærum 15-0 spretti í seinni hluta hans með Jay Threatt í fararbroddi og Snæfell var með sex stiga forskot fyrir lokaleikhlutann, 66-60. Grindvíkingar unnu fyrstu fjórar mínútur fjórða leikhlutans 11-2 og tóku frumkvæðið í leiknum á ný. Grindavík var 11 stigum yfir þegar tæpar tvær mínútur voru eftir en Snæfell náði að minnka muninn niður í tvö stig. Grindavík hélt hinsvegar út og fagnaði dýrmætum sigri.
Dominos-deild karla Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira