Körfubolti

Þórsarar unnu Stjörnuna - Hreinn hetja Tindastóls

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Benjamin Smith skoraði 43 stig í kvöld.
Benjamin Smith skoraði 43 stig í kvöld. Mynd/Valli
Þórsarar komust aftur upp í annað sætið í Dominos-deild karla í körfubolta eftir fimmstiga sigur á Stjörnunni, 105-100, í spennuleik í Icelandic Glacial höllinni í Þorlákshöfn í kvöld. Stjörnumenn hafa nú tapað þremur deildarleikjum í röð. Tindastóll komst á sama tíma úr fallsæti eftir dramatískan heimasigur á Fjölni.

Þórsliðið náði Snæfelli að stigum með sigri sínum á Stjörnunni í kvöld en tók annað sætið af Hólmurum vegna betri árangurs í innbyrðisleikjum. Grindavík er með tveggja stiga forskot á toppnum.

Tindastól vann tveggja stiga sigur á Fjölni á Sauðárkróki, 86-84, í hinum leik kvöldsins en það var Hreinn Gunnar Birgisson sem skoraði sigurkörfuna þegar aðeins 0,4 sekúndur voru eftir af leiknum. Tindastóll komst upp úr fallsæti með þessum sigri en eru með átta stig eins og bæði Fjölnir og ÍR.

Þórsarar héldu út í lokin eftir að Stjörnumenn unnu upp fimmtán stiga forskot þeirra á sjö síðustu mínútum leiksins. Lokakaflinn réðst síðan á vítalínunni og þar vóg frábært vítanýting Benjamin Smith þungt.

Benjamin Smith var með með 43 stig og 7 stoðsendingar í leiknum og David Jackson skoraði 29 stig. Jarrid Frye skoraði 35 stig fyrir Stjörnuna og Justin Shouse var með 32 stig.

Það voru miklar sveiflur í fyrri hálfleiknum í Þorlákshöfn þar sem bæði Þór og Stjarnan náðu ágætu forskoti en staðan var á endanum jöfn í hálfleik, 47-47. Þórsarar stungu af í þriðja leikhlutunum og virtist vera að gera út um leikinn.

Þór var fimmtán stigum yfir, 85-70, þegar sjö mínútur voru eftir en Garðbæingar unnu sig inn í leikinn og lokakafli leiksins var síðan æsispennandi.

Justin Shouse minnkaði muninn í eitt stig, 94-93, þegar 59 sekúndur voru eftir af leiknum en Benjamin Smith svaraði með körfu, 96-93 og nýtti síðan tvö víti sem skiluðu Þórsurum fimm stiga forskoti, 98-93, þegar 34 sekúndur voru eftir. Shouse setti niður annan þrist, 98-96, en fékk í kjölfarið sína fimmtu villu og Smith hitti úr öðru vítaskoti sínu, 99-96.

Jarrid Frye minnkaði muninn í eitt stig, 99-98 en fékk síðan á sig óíþróttamannslega villu þegar 20 sekúndur voru eftir. Smith nýtti bæði vítin og fékk síðan önnur tvö víti þegar 16,7 sekúndur voru eftir. Smith setti bæði vítin niður og kom Þór fimm stigum yfir, 103-98.

Spennan hélt samt áfram. Oddur Kristjánsson minnkaði muninn í þrjú stig, 103-100, þegar 4 sekúndur voru eftir. David Jackson fékk tvö víti þegar 3,6 sekúndur voru eftir og kláraði leikinn með því að nýta þau bæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×