Körfubolti

McCallum með 44 stig gegn Njarðvík

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/Stefán
Shannon McCallum heldur áfram að gera það gott með KR en hún hefur nú skorað alls 109 stig í sínum fyrstu þremur leikjum með liðinu.

Hún fór enn og aftur á kostum þegar að KR vann Njarðvík, 84-68, á útivelli í kvöld. Sigur KR var öruggur og náðu Íslands- og bikarmeistararnir aldrei að ógna forystu gestanna.

Sigrún Sjöfn Ámundadóttir kom næst í liði KR en hún var með 23 stig og fimmtán fráköst.

Lele Hardy átti einnig góðan leik og skoraði 33 stig auk þess að taka átján fráköst fyrir Njarðvík.

KR og Valur eru jöfn að stigum í 3.-4. sæti deildairnnar en Njarðvík er í því sjötta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×