Körfubolti

Umdeilt atvik í leik KFÍ og Snæfells

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Forráðamenn KFÍ ætla ekki að kæra atvik sem átti sér stað í leik liðsins gegn Snæfelli í gær.

KFÍ-TV setti í dag myndband á Youtube þar sem Sveinn Arnar Davíðsson, leikmaður Snæfells, virðist dangla fætinum í höfuð KFÍ-ingsins Damier Pitts.

Sævar Óskarsson, formaður KFÍ, sendi svo frá sér yfirlýsingu í dag þar sem fram kemur að félagið ætli sér ekki að aðhafast frekar í málinu.

Karfan.is hefur hins vegar heimildir fyrir því að dómarar leiksins hafi kært atvikið en Sveini Arnari var ekki refsað vegna þess í gær.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×