Körfubolti

Snæfell vann Keflavík í spennuleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jay Threatt
Jay Threatt Mynd/Stefán
Snæfell vann tveggja stiga sigur á Keflavík, 79-77, í æsispennandi leik í Stykkishólmi í 19. umferð Dominosdeild karla í körfubolta en liðin skiptu tuttugu sinnum um að hafa forystu í þessum leik.

Keflvíkingar hafa nú tapað tveimur leikjum í röð í kjölfarið á sjö leikja sigurgöngu og bæði töpin hafa komið á Vesturlandinu því liðið tapaði í Borganesi á mánudagskvöldið.

Ryan Amaroso kórónaði flottan leik með því að koma Snæfelli í 78-75 með körfu og víti að auki þegar 49 sekúndur voru eftir. Keflvíkingar náðu að minnka muninn í eitt stig og fengu sókn tólf sekúndum fyrir leikslok sem þeir nýttu ekki. Jón Ólafur Jónsson kláraði síðan leikinn með því að skora síðasta stig leiksins af vítalínunni.

Ryan Amaroso skoraði 25 stig fyrir Snæfell og Jay Threatt var með 18 stig og 8 stoðsendingar. Billy Baptist skoraði 23 stig og tók 12 fráköst hjá Keflavík og Darrel Lewis var með 22 stig.

Snæfell komst í 12-8 og 14-11 í fyrsta leikhlutanum en liðin skiptust annars á að hafa forystuna og í lok hans var jafnt 18-18.

Snæfell náði fimm stiga forystu í upphafi annars leikhluta, 26-21 en Keflavík jafnaði strax í 26-26 og leikurinn hélst áfram jafn. Snæfell var 44-40 yfir í hálfleik.

Snæfell skoraði fjögur fyrstu stigin í seinni hálfleik og komst átta stigum yfir, 48-40. Keflvíkingar komu hinsvegar sterkir til baka og voru tveimur stigum yfir, 58-56, fyrir lokaleikhlutann.

Keflavík var fjórum stigum yfir, 69-65, þegar rúmar fimm mínútur voru eftir af leiknum. Snæfellingar svöruðu með níu stigum í röð og náðu fimm stiga forystu, 74-69 en Keflvíkingar jöfnuðu aftur og lokasekúndurnar voru síðan æsispennandi.



Snæfell-Keflavík 79-77 (18-18, 26-22, 12-18, 23-19)

Snæfell: Ryan Amaroso 25/9 fráköst, Jay Threatt 18/5 fráköst/8 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 11/10 fráköst, Sigurður Á. Þorvaldsson 9/5 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6, Ólafur Torfason 5, Hafþór Ingi Gunnarsson 3, Sveinn Arnar Davíðsson 2/4 fráköst.

Keflavík: Billy Baptist 23/12 fráköst, Darrel Keith Lewis 22/4 fráköst, Michael Craion 13/14 fráköst, Valur Orri Valsson 7, Magnús Þór Gunnarsson 5, Snorri Hrafnkelsson 4, Arnar Freyr Jónsson 3.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×