Körfubolti

Leik lokið: Grindavík - KR 100-87

Jón Júlíus Karlsson í Röstinni skrifar
Grindvíkingar unnu mikilvægan sigur gegn KR í Dominos-deild karla í kvöld, 100-87. Grindvíkingar byrjuðu leikinn frábærlega og komust mest í 21 stigs forystu en KR-ingar bitu frá sér og náðu komast yfir í byrjun fjórða leikhluta. Það var þó ekki nóg því Grindvíkingar voru sterkari á lokametrunum og unnu góðan sigur.

Grindvíkingar hófu leikinn frábærlega í Röstinni í kvöld og náðu snemma góðri forystu. Sóknarleikur KR-ingar var í molum framan af og áttu Grindvíkingar ekki i erfiðleikum með að verjast sóknum þeirra. KR-ingar voru jafnframt að klúðra auðveldum skotum meðan Grindvíkingar voru að hitta vel. Staðan eftir fyrsta leikhluta, 24-9.

Það stefndi allt í stórsigur ef marka mátti fyrstu mínúturnar í öðrum leikhluta. Grindvíkingar héldu áfram að bæta muninn sem mestur var kominn í 23 stig í stöðunni 41-18. KR-ingar tóku leikhlé þegar tvær mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta og það má segja að þeir hafi mætt til leiks í kjölfarið. KR-tók frábæra rispu undir lok annars leikhluta þar sem þeir minnkuðu muninn niður í níu stig. Darshawn McClellan skoraði frábæran þrist þegar leiktíminn var að renna út og kom KR-ingum fyrir alvöru inn í leikinn.

Kristófer Acox átti mjög góða innkomu inn í lið KR í þriðja leikhluta. Hann skoraði nokkrar góðar körfur og tróð einnig frábærlega sem kveikti í KR-liðinu. KR náði að saxa vel á forystu Grindavíkur og lék Marteinn Hermannsson vel hjá KR og setti niður góða þrista. Staðan eftir þriðja leikhluta, 70-66 fyrir heimamenn.

KR-ingar hófu fjórða leikhluta frábærlega og komust yfir í stöðunni 71-72. Grindvíkingar svöruðu hins vegar strax fyrir sig með tveimur þristum og náðu aftur yfirhöndinni. Þegar leið á seinni hlutann í fjórða leikhluta virtust Grindvíkingar alltaf vera sterkari aðilinn og kannski hafði breiddin þar mest að segja. Lokatölur kvöldsins, 100-87.

Kristófer: Verðum að stíga upp

„Við náðum að komast aftur inn í leikinn og það hlýtur að þýða eitthvað. Við vorum undir með yfir 20 stigum í öðrum leikhluta en náðum að komast yfir í fjórða leikhluta. Ég veit ekki hvað gerist á lokamínútunum, það er eins og að við hefðum gefist upp," sagði Kristófer Acox, leikmaður KR eftir tap liðsins gegn KR. Hann átti ágætan leik og skoraði 17 stig í kvöld.

„Við getum unnið öll lið í þessari deild. Ef við spilum líkt og við gerðum í öðrum og þriðja leikhluta þá er mjög erfitt að vinna okkur. Við eigum slæma kafla inn á milli og líklega er það hugarfarinu að kenna. Við verðum að stíga upp á svona augnablikum og klára leikina eins og menn."

„Það er mjög jákvætt að við höfum verið ennþá inni í þessum leik eftir að hafa lent 20 stigum undir. Við vorum staðráðnir í að gefast ekki upp en við náðum ekki að halda út. Við verðum að gera betur."

Ólafur Ólafs: Alltaf ánægður með sigur gegn KR

„Ég er mjög sáttur með sigurinn. Við slökuðum óþarflega mikið á eftir að hafa verið 20 stigum yfir á tímabili. Við ákváðum að girða okkur í brók eftir að við misstum þessa forystu niður og klára leikinn með sigri,“ sagði Ólafur Ólafsson, leikmaður Grindavíkur eftir sigur liðsins gegn KR í kvöld.

„Það gerist stundum hjá okkur að við komust vel yfir í leikjum en missum þetta í spennuleiki. Við höfum samt verið að vinna þá leiki. Ég er alltaf ánægður með sigur á móti KR, alveg sama hvernig leikurinn vannst.“

Ólafur skoraði sex stig í kvöld og lék einnig fína vörn. Hann er að komast í sitt besta form á ný eftir að hafa orðið fyrir alvarlegum meiðslum í úrslitakeppninni á síðasta ári.

„Ég var í byrjunarliðinu í fyrsta sinn eftir meiðslin gegn Skallagrím í síðustu viku og nú aftur í kvöld. Jóhann Árni (Ólafsson) var í banni þannig að ég fékk mikið að spila í kvöld. Ég er að nálgast mitt besta form,“ segir Ólafur.

„Það er skýr krafa á að vinna deildina. Við þurfum sem betur fer ekki að treysta á neinn nema okkur sjálfa. Ef við vinnum síðustu þrjá leikina þá erum við deildarmeistarar og það ætlum við að gera.“

Grindavík-KR 100-87 (24-9, 24-30, 22-27, 30-21)


Grindavík: Samuel Zeglinski 30/5 fráköst/5 stoðsendingar, Aaron Broussard 23/8 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 13/11 fráköst/5 stoðsendingar/6 varin skot, Þorleifur Ólafsson 9/6 fráköst, Björn Steinar Brynjólfsson 8, Ómar Örn Sævarsson 7/5 fráköst, Ólafur Ólafsson 6, Ryan Pettinella 4.

KR: Martin Hermannsson 22, Kristófer Acox 17/6 fráköst, Darshawn McClellan 14/5 fráköst, Brynjar Þór Björnsson 12/7 fráköst, Brandon Richardson 12/6 fráköst/6 stoðsendingar, Helgi Már Magnússon 5/4 fráköst, Finnur Atli Magnusson 5.

Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson, Ísak Ernir Kristinsson, Rögnvaldur Hreiðarsson

Bein textalýsing:

40. min:
Leiknum lokið með 100-87 sigri Grindavíkur.

39. min:
Grindvíkingar eru að sigla sigrinum í hús. Eru betri á þessum síðustu mínútum leiksins. 95-81 þegar 01:20 er eftir.

39. min:
Zeglinski með enn einn þristinn. Staðan 93-81. Hefur skorað 27 stig í kvöld.

37. min:
Björn Steinar Brynjólfsson, Grindavík, með mjög mikilvægan þrist þegar sókn Grindvíkingar virtist vera að renna út í sandinn. Staðan, 88-81.

36. min:
KR-tekur leikhlé þegar það eru fjórar mínútur eftir af leiknum. Staðan er 84-78.



36. min: Samuel Zeglinski skorar enn einn þristinn. Staðan 84-78.

35. min: Það er talsverð spenna í leiknum. Staðan er 79-78 þegar 05:40 eru eftir.

33. min: Grindvíkingar svarar með tveimur þristum í röð. 77-72.

32. min: KR komið yfir eftir tvo þrista í röð. Staðan er 71-72.

30. min: Leikhlutanum lokið. Staðan er 70-66 fyrir Grindavík og spennandi lokaleikhluti framundan.

30. min: Grindvískir áhorfendur eru verulega ósáttir með dómgæsluna og láta vel í sér heyra. Staðan er 67-66.

29. min: Ásetningur dæmdur á bekkinn hjá Grindavík eftir að liðið tapaði boltanum. Grindvíkingar þurfa að hemja skap sitt. Staðan er 67-61.

28 min: Marteinn Hermannsson skorar góðan þrist fyrir KR. Kominn með 11 stig í kvöld. Staðan 67-59.

27. min: Kristófer Acox með frábæra troðslu fyrir KR eftir stoðsendingu frá Brynjari Þór Björnssyni. Staðan 62-54.

26. min: KR er að hitta miklu betur en þeir gerðu framan af í fyrri hálfleik. Samuel Zeglinski, Grindavík, er líka ágætur fyrir utan og setur þrist. Staðan 62-52.

24. min: Ólafur Ólafsson, Grindavík, meiðist eftir samstuð og verður að fara af velli. Grindvíkingar vilja ásetning en fá ekki.

23. min: Þorleifur Ólafsson, Grindavík, skorar mikilvægan þrist fyrir Grindavík sem kemur þeim aftur á bragðið. Staðan 53-45.

22. min: KR byrja þriðja leikhluta frábærlega. Kristófer Acox með fjögur stig í röð. Staðan er 48-45.

20. min: Aaron Broussard hefur skorað 13 stig fyrir Grindavík og Samuel Zeglinski er með 12 stig. Darshawn McClellan er með 9 stig fyrir KR.

20. min: KR tók frábæran leikkafla undir lok annars leikhluta. Dæmdur var ásetningur á Samuel Zeglinski, Grindavík, þegar 20 sekúndur. KR-ingar nýttu annað vítaskotið og þegar leiktíminn var að renna út skoraði Darshawn McClellan frábæran þrist. Slæmt fyrir Grindvíkinga en gott fyrir leikinn.

20. min: Öðrum leikhluta lokið. Staðan 48-39.

18. min: KR-ingar eru aðeins að taka við sér. Kristófer Acox treður fyrir KR. Staðan 46-32 fyrir heimamenn. Grindvíkingar taka leikhlé.

17. min: Helgi Magnússon skorar góðan þrist fyrir KR. Zeglinski, Grindavík, svarar í næstu sókn. 46-26.

17. min: Ryan Pettinella, Grindavík, er ennþá með skemmtilegan skotstíl í vítaskotum sínum. Hann setur annað niður af tveimur. Staðan er 43-23.

15. min: Aaroun Broussard er heitur í kvöld. Hann er kominn með 13 stig í kvöld. Staðan er 41-18.

14. min: Þrátt fyrir að vera 20 stigum yfir þá er Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur ekki alveg sáttur með sína menn og tekur leikhlé. Skerpir á leikaðferðinni.

13. min. Grindvíkingar leika á alls oddi. Þorleifur Ólafsson skorar þrist. Marteinn Hermannsson skorar tvo stig hinum megin og fær villu að auki. Staðan 38-18.

12. min: Leikurinn er algjör einstefna. KR taka leikhlé enda 20 stigum undir. Staðan er 33-13. Sóknarleikurinn hjá KR er vægast sagt slakur. Grindvíkingar hins vegar að leika frábærlega í vörn og sókn.

11. min: Ásetningur dæmdur á Helga Magnússon hjá KR er Sigurður Gunnar Þorsteinsson, Grindavík, skorar góða körfu. Hann setti niður vítaskotið og Grindavík fékk boltann á ný og skoraði. Staðan er 29-11.

10. min: Samuel Zeglinski er stigahæstur í leiknum með 7 stig.

10. min: Fyrsta leikhluta lokið. Samuel Zeglinski skoraði góða tveggja stiga körfu í þann mund er leiktíminn rann út. Grindvíkingar að leika mjög vel meðan KR-ingar eru talsvert frá sínu besta. Staðan 24-9.

9. min: Staðan er 20-8 þegar skammt er eftir af fyrsta leikhluta. KR þarf að bæta skotin. Marteinn Hermannsson hefur þó átt góða innkomu í leik KR.

6. min: Grindvíkingar eru komnir með góð tök á leiknum. Leiða 13-5. KR tekur leikhlé. Sóknarleikur liðsins hefur ekki verið góður til þessa og mörg auðveld skot ekki ratað niður.

5. min: Grindavík eru komnir sex stigum yfir. Þorleifur Ólafsson setti niður góðan þrist fyrir heimamenn. 11-5.

3. min: Staðan er 6-5 þegar þrjár mínútur eru liðnar. Leikurinn fer ágætlega af stað.

2. min: Dómarar leiksins kvarta yfir lýsingunni í húsinu. Húsráðandi hér í Röstinni í Grindavík segir að það séu ekki til fleiri perur.

1. min: Aaroon Broussard skorar fyrstu stig leiksins fyrir Grindavík. Brynjar Þór Björnsson jafnar leikinn fyrir KR í næstu sókn. 2-2.

0. min: KR vann góðan heimasigur gegn ÍR í síðustu umferð. Grindvíkingar töpuðu hins vegar illa fyrir Stjörnunni á sama tíma í Garðabæ.

0. min: Velkomin til leiks hér í Grindavík. Stutt er í að leikurinn hefjist. Mikilvægur leikur fyrir bæði lið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×