Körfubolti

Frítt á völlinn hjá KR | Nóg um að vera í kvöld

Helgi Magnússon og lærisveinar hans taka á móti ÍR.
Helgi Magnússon og lærisveinar hans taka á móti ÍR.
Það er nóg um að vera í handboltanum og körfuboltanum í kvöld. KR-ingar hafa boðið til mikillar veislu fyrir borgarslaginn gegn ÍR í Dominos-deild karla og verður frítt inn á leikinn.

KR er nýbúið að semja við DHL um áframhaldandi samstarf til ársins 2017. Heimavöllur liðsins hefur borið heitið DHL-höllin og mun gera það áfram.

Snæfell sækir Tindastól síðan heim í körfunni á meðan Skallagrímur fær Keflavík í heimsókn.

Akureyri og FH mætast í fyrsta leik kvöldsins í handboltanum. Síðan byrja tveir leikir klukkan 19.30.

Leikir kvöldsins:

Dominos-deild karla:

19.15 KR - ÍR

19.15 Tindastóll - Snæfell

19.15 Skallagrímur - Keflavík

N1-deild karla:

19.00 Akureyri - FH

19.30 ÍR - Valur

19.30 Afturelding - Haukar




Fleiri fréttir

Sjá meira


×