Sport

Myndband af vigtun Bjarka og Árna

Þeir Árni Ísaksson og Bjarki Þór Pálsson keppa í Cage Contender-keppni sem haldin verður í Dyflinni á Írlandi í kvöld.

Þeir keppa báðir fyrir hönd Mjölnis en meðfylgjandi myndband var tekið af vigtun þeirra fyrir keppnina í gær.

„Mér hefur aldrei liðið jafn vel fyrir bardaga," sagði Árni en hann er ríkjandi veltivigtarmeistari í Cage Contender.

Hann keppir við Ali Arish en sýnt verður beint frá keppninni á Stöð 2 Sport í kvöld. Útsending hefst klukkan 21.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×