Körfubolti

Teitur fagnaði með þristi | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Teitur Örlygsson, þjálfari Stjörnunnar, sýndi að hann hefur engu gleymt þegar hann setti niður skot utan þriggja stiga línunnar eftir sigur sinna manna á Keflvíkingum í gær.

Með sigrinum komst Stjarnan áfram í undanúrslit úrsiltakeppni Domino's-deild karla en Teitur hefur náð frábærum árangri með Garðbæinga síðustu ár.

Teitur var frábær leikmaður á sínum tíma og minnti á sig með þessum skemmtilegu tilþrifum sem sjá má hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×