Körfubolti

Snæfell skoraði sjö síðustu stigin og vann með minnsta mun

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Jay Threatt  skoraði sigurstigið í kvöld.
Jay Threatt skoraði sigurstigið í kvöld. Mynd/Stefán
Snæfellingar eru komnir í 1-0 í einvígi sínu á móti Njarðvík í átta liða úrslitum Dominos-deildar karla eftir dramatískan 79-78 sigur í Stykkishólmi í kvöld.

Snæfellingar skoruðu sjö síðustu stigin í leiknum og Njarðvíkingum tókst ekki að skora síðustu tvær og hálfu mínútu leiksins. Jay Threatt skoraði þrjú síðustu stig leiksins af vítalínunni þegar 70 sekúndur voru eftir.

Ryan Amaroso skoraði 27 stig og tók 10 fráköst hjá Snæfelli og

Jay Threatt var með 22 stig og 9 stoðsendingar. Jón Ólafur Jónsson skoraði 17 stig.

Elvar Már Friðriksson var með 35 stig, 7 fráköst og 6 stoðsendingar hjá Njarðvík og Marcus Van bætti við 17 stigum og 24 fráköstum.

Annar leikur liðanna fer fram í Njarðvík á mánudagskvöldið en Snæfell kemst í undanúrslitin með sigri en sigur Njarðvíkur myndi þýða oddaleik í Stykkishólmi á fimmtudaginn kemur.

Njarðvíkingar komust í 10-2 eftir aðeins rúmlega þriggja mínútna leik en Snæfellingar vöknuðu þá af værum blundi, snéru leiknum sér í hag og voru 22-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann.

Snæfell var síðan 41-36 yfir í hálfleik þrátt fyrir 22 stig frá Elvari Má Friðrikssyni sem var nánast óstöðvandi í fyrri hálfleiknum.

Njarðvíkingar voru komnir yfir í lok þriðja leikhluta en Jón Ólafur Jónsson átti lokaorðið þegar hann setti niður þrist og kom Snæfell í 57-56 fyrir lokaleikhlutann.

Snæfell komst fimm stigum yfir í fjórða leikhlutanum, 65-60 en Njarðvíkingar jöfnuðu strax í 65-65 og komust síðan í 78-72 þegar tvær og hálf mínúta var eftir.

Snæfellsliðið átti hinsvegar svör og sjö stig í röð kom liðinu einu stigi yfir, 79-78, þegar 70 sekúndur voru eftir. Lokamínútan var æsispennandi en hvorugu liðinu tókst að skora og því fögnuðu heimamenn dramatískum sigri.



Snæfell-Njarðvík 79-78 (22-16, 19-20, 16-20, 22-22)

Snæfell: Ryan Amaroso 27/10 fráköst, Jay Threatt 22/4 fráköst/9 stoðsendingar, Jón Ólafur Jónsson 17/4 fráköst, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 6, Sigurður Á. Þorvaldsson 5/4 fráköst/7 stoðsendingar, Ólafur Torfason 2/4 fráköst.

Njarðvík: Elvar Már Friðriksson 35/7 fráköst/6 stoðsendingar, Marcus Van 17/24 fráköst, Ólafur Helgi Jónsson 11, Ágúst Orrason 6, Nigel Moore 5/5 fráköst, Friðrik E. Stefánsson 2, Hjörtur Hrafn Einarsson 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×